Algengar spurningar

Hér má finna svör við algengustu spurningum viðskiptavina Hugverkastofunnar.

  • Kostnaður við skráningu vörumerkja fer eftir því hversu margir vöru- og þjónustuflokkar eru valdir. Einn flokkur er innifalinn í grunngjaldinu, síðan bætist flokkagjald við fyrir hvern umframflokk. Innifalið í kostnaði í upphafi er rannsókn á skráningarhæfi og meðhöndlun umsóknar og skráningar fram að næstu endurnýjun.

  • Auðveldast er að sækja um vörumerki með rafrænni umsókn. Til að sækja um rafrænt þarf viðkomandi að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

  • Vörumerki eru skráð og endurnýjuð til 10 ára í senn. Endurnýja þarf vörumerki til þess að þau haldi gildi sínu. Endurnýja má vörumerki eins oft og eigandi óskar. Eigandi vörumerkis fær tilkynningu með tölvupósti þegar komið er að endurnýjun. Þess vegna er mikilvægt að eigendur vörumerkja tilkynni Hugverkastofunni um breytingu á netföngum ef svo er, en það má gera með tölvupósti. Hugverkastofan ber ekki ábyrgð á missi réttinda ef tilkynning er annað hvort ekki send eða hún kemst ekki til skila.

  • Vörumerki eru skráð til 10 ára í senn. Ef umsókn um endurnýjun vörumerkjaskráningar er ekki lögð fram innan frests verður merkið afmáð. Umsækjandi getur óskað eftir endurupptöku innan tveggja mánaða frá því að frestur rann út. Beiðni um endurupptöku þarf að fylgja umsókn um endurnýjun og greiða þarf tilskilin gjöld. Afmáð vörumerki eru laus fyrir aðra.

  • Vörumerki sem skráð eru hjá Hugverkastofunni gilda eingöngu á Íslandi, þ.e. að eigandinn hefur aðeins einkarétt á merkinu hér á landi. Ef markaðssetning er fyrirhuguð erlendis er mikilvægt að skrá merkið einnig í öðrum ríkjum ef tryggja á vernd þess.  

    Hægt er að sækja um alþjóðlega skráningu hjá Hugverkastofunni. Alþjóðleg umsókn verður að byggja á landsbundinni umsókn og þarf því að sækja um á Íslandi áður en alþjóðleg umsókn er lögð inn. Umsóknin þarf að vera eins í báðum tilvikum. Í umsókn um alþjóðlega skráningu þarf að tilgreina í hvaða ríkjum er óskað skráningar. Hægt er að vernda merkið í yfir 120 löndum. Hvert land fyrir sig tekur ákvörðun um skráningarhæfi umsóknar.

  • Með umsókn skapast svokallaður forgangsréttur sem þýðir að í 6 mánuði frá umsóknardegi er hægt að leggja inn umsókn erlendis og fá skráðan sama umsóknardag og á Íslandi. Umsóknin fær því forgang framyfir þau merki sem eru eins eða lík og koma fram í millitíðinni. Þar af leiðandi tapast enginn tími við að kanna með fyrstu viðbrögð við íslensku umsókninni.  

  • Vörumerkjavernd skapast með tvennum hætti, notkun eða skráningu hjá Hugverkastofunni. Áður en farið er út í kostnaðarsamt markaðsstarf er æskilegt að fá úr því skorið hvort merki sé þess eðlis að hægt sé að fá einkarétt á því. Eins er mikilvægt að merki sé skráð ef til þess kemur að verja þurfi það fyrir ágangi annarra. Hægt er að gera leit að umsóknum og skráðum merkjum í vörumerkjaleitarvél Hugverkastofunnar.

  • Vörumerki eru oft verðmætustu eignir fyrirtækja og mikilvægt að halda vel utan um þau og vernda. Það fer mikill tími og vinna í að byggja upp fyrirtæki. Í nafni, orðspori og viðskiptavild felast mikil verðmæti sem eru vernduð með vörumerki fyrirtækisins, vöru þess eða þjónustu. Þú vilt ekki að þriðji aðili nýti sér þessi verðmæti.

    Það er því vit í því að vernda nafn, vörumerki og myndmerki fyrirtækisins og vera því í sterkari stöðu gagnvart öðrum aðilum sem vilja nýta sér árangur annarra. Það minnkar einnig áhættuna á ágreiningi sem getur verið kostnaðarsamur.

  • Gott vörumerki felur í sér orð eða tákn sem er einstakt og gefur merkinu sérkenni. Hlutverk vörumerkja er að greina vörur og þjónustu merkiseiganda frá vörum og þjónustu annarra. Því er mikilvægt að vörumerki feli í sér einkenni sem neytandinn festir sér auðveldlega í minni.  

  • Hugverkastofan sér um skráningu vörumerkja og fyrirtækjaskrá RSK skráir fyrirtæki og félagasamtök og heldur utan um tilgang félaga, eigendur þeirra o.fl.

    Hjá Hugverkastofunni er m.a. hægt að sækja um skráningu á orðmerki, myndmerki, þrívíddarmerki, staðsetningarmerki, mynsturmerki, litamerki, hljóðmerki, hreyfimerki, margmiðlunarmerki og heilmyndarmerki. 

  • Félagamerki eru sameiginlegt auðkenni fyrir félög eða samtök til að nota í atvinnustarfsemi. Félagsmönnum er leyft að nota merkið til að merkja vörur og/eða þjónustu.

    Með skráningu félagamerkis geta félög eða samtök öðlast einkarétt á að nota sameiginlegt auðkenni fyrir félagsmenn sína til að nota í atvinnustarfsemi. 

    Félagamerki eru í eðli sínu vörumerki og þurfa að uppfylla sömu skráningarskilyrði, ásamt reglum um notkun merkis þ.e.

    1. Hverjir hafa heimild til þess að nota merkið.
    2. Hvaða skilyrði gilda um notkun merkisins og hvaða afleiðingar og viðurlög óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér.
    3. Hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið.
    4. Hvaða reglur gilda um aðild að því félagi sem á merkið ef um félagamerki er að ræða.

    Dæmi um félagamerki eru nöfn á íþróttafélögum og vörumerkið Kaka ársins sem er í eigu félags bakarameistara.

  • Ábyrgðar- og gæðamerki eru merki sem aðgreina vöru eða þjónustu sem vottuð er af eiganda merkisins að því er varðar efni, framleiðsluaðferð og gæði eða aðra eiginleika frá annarri vöru eða þjónustu sem hefur fengið slíka vottun. Einungis aðilar sem setja staðla um eða annast eftirlit með vörum eða þjónustu geta sótt um ábyrgðar- og gæðamerki. Með skráningu getur eigandi bannað öðrum að nota sama eða líkt merki.

    Ábyrgðar- og gæðamerki eru í eðli sínu vörumerki og þurfa að uppfylla sömu skráningarskilyrði, ásamt reglum um notkun merkis þ.e.

    1. Hverjir hafa heimild til þess að nota merkið.
    2. Hvaða skilyrði gilda um notkun merkisins og hvaða afleiðingar og viðurlög óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér.
    3. Hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið.
  • Mikilvægt er að vanda til verka þegar listi yfir vöru og/eða þjónustu er settur saman því ekki er hægt að bæta við flokkum eða tilgreiningum eftir að umsókn hefur verið send inn. Gagnlegt getur verið að skoða vörulista sambærilegra fyrirtækja. Þetta má gera í vörumerkjaleitarvél Hugverkastofunnar. 

    Alltaf þarf að tilgreina þá vöru og/eða þjónustu sem merkið á að standa fyrir. Flokkarnir eru 45. Velja má einn eða fleiri flokka. Yfirskriftir flokkanna (1–45) gefa vísbendingu um það hvaða vörur/þjónusta fellur undir hvern flokk. 

  • Hugverkastofan hefur ekki heimild í lögum til að sinna eftirliti og gera aðfinnslur við notkun merkja á markaði. Stofnunin sinnir eingöngu því hlutverki að veita vörumerkjaréttindi og er það í höndum rétthafa að framfylgja þeim rétti sínum.  

    Ef eigandi skráðs vörumerkis telur að verið sé að brjóta á vörumerkjarétti hans ráðleggjum við honum að byrja á að upplýsa viðkomandi aðila um skráninguna. Þetta má t.d. gera bréflega. Ef slíkt gengur ekki eftir má leita til lögfræðings eða Neytendastofu sem hefur eftirlits- og aðgerðaheimildir sem Hugverkastofan hefur ekki.   

  • Nei, það er ekki leyfilegt að gera breytingar á umsóknum um vörumerki eftir að umsókn hefur verið lögð inn. Því er mikilvægt að vanda vöru- og þjónustulistann og velja rétta tegund merkisins.

    Breyting á skráðu merki 
    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir að gera minni háttar breytingar á skráðu vörumerki. Breytingarnar mega ekki vera það miklar að þær breyti heildarmynd merkisins.  Gjald skv. gjaldskrá þarf að fylgja beiðni um breytingu á skráðu merki. 

    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir því að Hugverkastofan uppfæri mynd sem sýnir vörumerki í betri gæðum og/eða upplausn. 

    Skipti vörumerkið um eiganda er nauðsynlegt að leggja fram gögn því til staðfestingar til Hugverkastofunnar, s.s. framsal, gögn um samruna eða önnur gögn. Einnig er mikilvægt að tilkynna Hugverkastofunni ef: 

    • nafn fyrirtækisins breytist 
    • heimilisfang eiganda breytist 
    • þú framselur vörumerkið til annars aðila 
    • þú veðsetur vörumerkið 
    • þú breytir reglum um notkun félagamerkis eða ábyrgðar- og gæðamerkis 
    • þú skiptir um umboðsmann 

    Eigandi vörumerkis getur óskað eftir að fella úr gildi hluta vöru- og/eða þjónustulistans, eða fella skráninguna niður í heild sinni. 

    Hverju er ekki hægt að breyta? 

    Það er aldrei hægt að bæta við vöru- og þjónustulistann 

  • Vörumerki þarf að endurnýja á 10 ára fresti. Sótt er um endurnýjun út af spjaldi vörumerkis sem má nálgast í gegnum leitarvélina okkar. Þú leitar að merkinu sem á að endurnýja, smellir á það og leggur inn umsókn um endurnýjun.

    • Umsækjendur búsettir á Íslandi þurfa ekki að hafa umboðsmann. 
    • Greiðsluseðlar stofnast á tilgreindan umboðsmann og berast í  heimabanka hans. 
    • Umsækjandi og umboðsmaður getur ekki verið sami aðili. 
    • Umboðsmaður þarf að hafa heimild eiganda merkis til þess að taka við tilkynningum um merkið. 
    • Almennt er ekki krafist sönnunar á umboði en Hugverkastofan getur þó ávallt krafist slíkrar sönnunar ef þörf er á. 
    • Umboðsmaður fær tilkynningu um að komið sé að endurnýjun merkis eða eins og netfang hans segir til um. 
  • Unnt er að óska eftir eftirfarandi breytingum á merki:

    • Óska má eftir að tilgreiningar úr vöru- og þjónustulista eða flokkar í heild sinni verði felldir niður og skráning þannig takmörkuð.
    • Þá er hægt að óska eftir smávægilegri breytingu á mynd eða texta merkis.
    • Ef sótt var um myndmerki fyrir 1. september 2020 má óska eftir að tegund þess verði breytt.

    Allar breytingar sem eigandi merkis óskar eftir eru yfirfarnar af Hugverkastofunni og færðar í vörumerkjaskrá ef engar athugasemdir eru gerðar af hálfu stofnunarinnar. Ef Hugverkastofan hefur athugasemdir eða telur gögn sem fylgja beiðni ófullnægjandi er veittur frestur til úrbóta.

    Beiðni um breytingu er hægt að leggja inn með stafrænum hætti af spjaldi/síðu viðkomandi vörumerkis.

  • Hugverkastofan getur, að beiðni umsækjanda og gegn greiðslu tilskilins gjalds, hlutað umsókn sundur í tvær eða fleiri umsóknir. Sama gildir um skráningar.  Nýja umsóknin/skráningin skal hafa sama umsóknar- og forgangsréttardag og grunnskráningin en sjálfstætt skráningarnúmer verður gefið. Nýja umsóknin/skráningin getur ekki innihaldið sama/sömu vöru- og/eða þjónustuflokk/flokka og sú fyrri.

    Ákvörðun um hlutun umsóknar/skráningar er birt í Hugverkatíðindum.

    Gögn vegna hlutunar umsókna og skráninga

    Beiðni um hlutun umsóknar/skráningar skal innihalda:

    • númer umsóknarinnar/skráningarinnar sem óskað er að hluta,
    • lista yfir þær vörur og/eða þjónustu sem hver umsókn/skráning á að innihalda eftir hlutunina.

    Umsókn eða skráning, sem verður til við hlutun, má ekki vera víðtækari en upprunalega umsóknin. Þá má nýja umsóknin/skráningin ekki taka til sömu vöru eða þjónustu og hin upprunalega.

    Þegar beiðni um hlutun umsóknar hefur verið afgreidd fær nýja umsóknin nýtt sjálfstætt ­númer en heldur sömu umsóknar- og forgangsréttardagsetningu og upprunalega umsóknin sé slíku til að dreifa.

    Þegar beiðni um hlutun vörumerkjaskráningar hefur verið afgreidd fær nýja skráningin nýtt sjálfstætt ­númer en heldur sömu skráningar-, umsóknar- og forgangsréttardagsetningu og upprunalega skráningin sé slíku til að dreifa.

    Umboð, framsalsgögn og önnur skjöl tengd upprunalegu umsókninni/skráningunni gilda einnig fyrir nýju umsóknina/skráninguna sem verður til við hlutun.

    Breytingin er birt í Hugverkatíðindum.

  • Umsóknargjaldið fer eftir gildandi gjaldskrá Hugverkastofunnar, sem nær eingöngu yfir landsbundnar umsóknir. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hvað einkaleyfi kostar í heild sinni en það veltur t.d. á fjölda krafa. 10 kröfur eru innfaldar en greiða þarf aukalega fyrir hverja kröfu umfram það. 

    Algengt er að íslensk umsókn sé notuð sem grunnur (forgangsréttur) fyrir umsóknir í öðrum löndum en einkaleyfi þarf að vernda í hverju landi fyrir sig. Þýðingakostnaður getur bæst við umsóknargjöld auk þess sem greiða þarf árgjöld af umsókninni í hverju landi fyrir sig.

  • Með einkaleyfi er hægt að vernda tæknilega útfærslu á hugmynd. Ekki er hægt að vernda hugmyndina sjálfa heldur aðeins útfærslu hennar, svo sem búnað, afurð, aðferð eða notkun. Uppfinningin verður að vera ný á heimsvísu á umsóknardegi og nægilega frábrugðin því sem þegar er þekkt. Uppfinningin þarf jafnframt að vera hæf til framleiðslu og hagnýtingar og lýsing hennar þarf að vera skýr og greinileg þannig að fagmaður geti útfært hana á grundvelli lýsingarinnar. Ekki má opinbera uppfinninguna fyrir umsóknardag, hvorki af uppfinningarmanni, umsækjanda sjálfum né öðrum.

  • Hugverkastofan mælir með að leita aðstoðar sérfræðings á sviði hugverkaréttar við gerð einkaleyfaumsókna. 

    Hægt er að leggja inn umsókn um einkaleyfi hjá Hugverkastofunni. Til þess að sækja um einkaleyfi þarf umsækjandi að hafa lögheimili á Íslandi, annars þarf að tilnefna umboðsmann til að koma fram fyrir hönd umsækjanda varðandi umsóknina.

  • Greiða þarf árgjöld einu sinni á ári til að viðhalda umsókninni og síðar einkaleyfinu. Einkaleyfi gildir í 20 ár frá umsóknardegi. 

  • Lýsing: Lýsa þarf hugmyndinni ítarlega, allt frá því að hugmyndin verður til og þar til hún er fullmótuð. Lýsa því hvernig uppfinningin virkar, hvernig er hún frábrugðin því sem þegar er til, hverjum hún nýtist o.s.frv. Lýsingin þarf að vera það nákvæm að sá sem rannsakar nýnæmi uppfinningarinnar átti sig á uppfinningunni með lestri lýsingarinnar. Því er mikilvægt að segja frekar meira en minna.  

    Kröfur: Hér er talið upp hvað á að vernda í uppfinningunni. Mikilvægt er að útskýra á nákvæman hátt hvað á að vernda í hverri kröfu fyrir sig. Ef kæmi til dómsmála varðandi einkaleyfið eru það kröfurnar sem segja til um hvað er verndað í uppfinningunni. Því er mikilvægt að vanda orðalag vel. 

    Ágrip: Stutt samantekt sem inniheldur að hámarki 150 orð um innihald umsóknarinnar.   

    Teikningar: Gott er að láta teikningar fylgja með umsókn ef það á við, en það er ekki nauðsynlegt.

    Ávallt skal vanda til verka þegar einkaleyfaumsókn er skrifuð. Hafa þarf í huga að allar umsóknir þarf að útfæra samkvæmt ákveðnum reglum (form og uppsetning) s.s. reglum um letur, blaðsíðutal, númer á línum og uppsetningu að öðru leyti. Því betur sem umsóknin er unnin því meiri möguleikar eru á jákvæðri rannsóknarniðurstöðu. Mælt er með að leita til sérfræðinga á sviði hugverkaréttar á þessu sviði sem geta aðstoðað við skrifin. 

  • Sýnishorn af einkaleyfum má t.d. finna í gagnagrunninum Espacenet. Gagnlegt getur verið að kynna sér umsóknir eða útgefin einkaleyfi á sviði uppfinningarinnar.

  • Erfitt er að segja til um hversu langan tíma umsóknarferlið tekur. Það veltur á rannsóknarniðurstöðum o.fl. Gróflega má reikna með því að umsóknarferlið taki hið minnsta eitt og hálft ár og allt upp í nokkur ár. Algengt er að það taki þrjú ár að fá einkaleyfi.  

  • Umsókn sem lögð er inn hjá Hugverkastofunni gildir eingöngu á Íslandi. Umsækjandi hefur 12 mánuði frá umsóknardegi til þess að ákveða hvort sótt er um erlendis, t.d. í alþjóðlegu ferli. 

  • Allar umsóknir eru birtar þegar 18 mánuðir eru liðnir frá umsóknardegi. Þangað til er öllum gögnum umsóknarinnar haldið leyndum. Þegar umsóknin hefur verið birt verður hún aðgengileg öllum og telst vera þekkt tækni gagnvart öðrum umsóknum.

  • Kostnaður við skráningu hönnunar fer eftir umfangi umsóknarinnar, hvort umsóknin feli í sér eina hönnun eða fleiri (samskráning) og hversu margar myndir umsækjandinn lætur fylgja með umsókninni. 

    Greiða þarf fyrir hönnun innan 7 daga frá því umsókn er lögð inn. 

  • Skráning hönnunar gildir í 25 ár. Oft er hönnun skráð til fimm ára til að byrja með og tímabilið svo endurnýjað um fimm ár í senn þar til 25 ára verndartíma er náð.

  • Hægt er að sækja um hönnun rafrænt á heimasíðu Hugverkastofunnar. Við gerð hönnunarumsóknar er mikilvægt að teikningar og/eða myndir af hönnuninni séu skýrar og að ekkert annað sé á myndunum nema það sem óskað er verndar á. Verndin ræðst af því sem sést á myndunum. 

  • Hönnunarskráning verndar útlit vöru eða hluta af vöru, þ.e. lögun, liti, mynstur o.fl. Til þess að hönnun njóti verndar samkvæmt lögum um hönnun þarf hún að uppfylla þau skilyrði að vera ný og sérstæð.

    • Myndir eiga að vera á JPEG–formi.
    • Hver mynd á aðeins að sýna vöruna frá einu sjónarhorni.
    • Á mynd má aðeins koma fram varan sem verndin á að ná til.
    • Bakgrunnur myndanna ætti að vera eins hlutlaus og kostur er.
    • Ef fleiri myndir en ein eru lagðar inn með umsókn er best að auðkenna myndir með skýrum hætti. Þegar um samskráningu er að ræða er enn fremur best að auðkenna hverja mynd fyrir sig með númeri svo ljóst sé hvaða myndir tilheyri hvaða hönnun.
  • Til þess að hönnun njóti verndar þarf hún að uppfylla það skilyrði að vera ný og sérstæð.

    Hönnun má ekki innihalda:

    • Fána eða önnur merki, tákn eða skjaldarmerki sem hafa sérstakt gildi fyrir almenning.
    • Vörumerki eða heiti á atvinnustarfsemi annars aðila.
    • Verk sem nýtur verndar höfundarréttarlaga.
  • Með umsókn skapast svokallaður forgangsréttur sem þýðir að í 6 mánuði frá umsóknardegi er hægt að leggja inn umsókn erlendis og fá skráðan sama umsóknardag og á Íslandi. Umsóknin fær því forgang framyfir þau merki sem eru eins eða lík og koma fram í millitíðinni. Þar af leiðandi tapast enginn tími við að kanna með fyrstu viðbrögð við íslensku umsókninni.  

  • Í einni og sömu umsókn er hægt að sækja um vernd á fleiri en einni hönnun. Skilyrði er að um sé að ræða vörur til sömu eða svipaðra nota og að þær séu flokkaðar í sama flokk samkvæmt Locarno–samningnum um alþjóðlega flokkun hönnunar.

    Dæmi um samskráningar eru:

    • Húsgögn; borð, stóll, o.þ.u.l.
    • Skartgripir; hringur, hálsmen, armband, o.þ.u.l.
  • Allt samið mál í ræðu og riti. Það skiptir engu á hvern hátt og í hvaða formi verkið birtist. Dæmi eru

    • Bókmenntir eins og skáldsögur, ljóð, leikrit og blaðagreinar
    • Tölvukóði og gagnagrunnar
    • Leiksviðsverk
    • Tónsmíðar
    • Byggingarlist, kort og tækniteikningar
    • Listaverk eins og málverk, teikningar, ljósmyndir og höggmyndir
    • Kvikmyndir
    • Nytjalist 
    • Dansverk
    • Skissur og þrívíddarverk sem tengjast landafræði, svæðislýsingum, arkitektúr og vísindum
    • Auglýsingar
    • Bæklingar, kynningarefni og handbækur

    Höfundaréttur er ekki skráður sérstaklega hérlendis en verður til um leið og verk er komið í skynjunarhæft form.

  • Höfundaréttur er réttur sem skapast við birtingu verks. Um réttinn gilda höfundalög og almennt er ekki hægt að skrá réttinn sérstaklega. Einstaka ríki bjóða þó upp á það. Það eru ekki aðeins listaverk, bókmennta- og kvikmyndaverk sem eru vernduð af höfundarétti heldur á þetta verndarform einnig við um tölvuforrit, byggingarlist, nytjalist, teikningar, líkön o.fl. Höfundaréttur getur því tekið til hluta vöru sem einnig er vernduð með öðrum hætti, s.s. snjallsíma, sem hefur iðulega að geyma öll verndarform.

  • Sanna birtingu
    Gott er að halda utan um birtingu á höfundaréttarvörðu efni til sönnunar seinna meir.

    Nota © merki
    Þó að höfundaréttarmerkið © veiti enga lagalega vernd þá getur það ásamt nafni höfundaréttarhafa sýnt á skýran hátt að efnið sé höfundaréttarvarið og hver eigandi þess sé.

    Halda úti hugverkaskrá
    Til að hafa góða yfirsýn yfir hugverk fyrirtækis getur reynst vel að halda úti hugverkaskrá þar sem öll hugverk eru listuð upp og skýrt hvernig þau eru varin, hvar þau eru varin og hve lengi sú vernd varir. –

    Höfundaréttargagnagrunnar
    Með því að notast við höfundaréttargagnagrunna er hægt að sanna eignarhald og koma í veg fyrir ágreining um höfund verks. i-Depot gagnagrunnur Hugverkastofu Benelúxlandanna (BOIP) er dæmi um slíkan gagnagrunn. Tímastimpill gagnagrunnsins getur vegið þungt í að sanna eignarhald á höfundaréttarvörðu efni fyrir dómstólum.

  • Höfundaréttur á Íslandi helst þangað til 70 ár eru liðin frá næstu áramótum eftir andlát þess höfundar sem lengst lifir.

  • Menningar- og viðskiptaráðuneytið fer með höfundaréttarmálefni og stjórnsýslu vegna hagsmunamála rétthafa höfunda, flytjenda, útgefenda, framleiðenda, fjölmiðla og samtaka þeirra. Ráðuneytið fer með aðild Íslands að alþjóðlegum samningum á sviði höfundaréttar í umboði utanríkisráðuneytisins og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi á vegum alþjóðahugverkastofnunarinnar WIPO auk þess að taka þátt í samstarfi norræna ráðuneyta og starfi sérfræðingahópa á vegum Evrópusambandsins og EFTA um hugverkaréttarmálefni.

  • Höfundaréttur veitir höfundi verksins ákveðin réttindi:

    • Rétturinn til birtingar (birtingaréttur). Með því að birta hugverkið ertu að dreifa því til almennings.
    • Rétturinn til gera eintök af verkum sínum (oft nefnt fylgiréttur eða réttur til eintakagerðar).
    • Sæmdarréttur, en hann felur í sér að skylt er að geta nafns höfundar í hvert skipti sem verkið er birt. Ekki er hægt að afsala sér sæmdarrétti.

    Sem höfundur verks getur þú einnig framselt réttindi þín til annarra og þannig skapað tekjulind. Hinsvegar getur þú ekki afsalað þér sæmdarrétti.

  • Viðskiptaleyndarmál eru upplýsingar sem hafa viðskiptalegt gildi vegna þess að þeim er haldið leyndum. Þetta geta verið framleiðsluaðferðir, uppskriftir, viðskiptaáætlanir, forritunarkóði eða aðrar upplýsingar sem fyrirtæki vilja halda leyndum til að viðhalda samkeppnisforskoti. Viðskiptaleyndarmál njóta lagalegrar verndar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

  • Til að vernda viðskiptaleyndarmál er mikilvægt að grípa til ráðstafana til að halda þeim leyndum. Það getur m.a. falist í að setja trúnaðarákvæði í ráðningarsamninga starfsmanna, gera trúnaðarsamninga við samstarfsaðila og takmarka aðgengi að viðkvæmum upplýsingum þannig að aðeins þau sem þurfa á þeim að halda hafi aðgang.

  • Nei, það þarf ekki að skrá viðskiptaleyndarmál sérstaklega til að þau njóti lagalegrar verndar. Vernd þeirra byggist á því að eigandi grípi til eðlilegra ráðstafana til að halda þeim leyndum, svo sem með trúnaðarsamningum, aðgangsstýringum og fræðslu til starfsmanna.

  • Upplýsingar teljast viðskiptaleyndarmál ef þær eru ekki almennt þekktar eða aðgengilegar, hafa viðskiptalegt gildi vegna þess að þeim er haldið leyndum og eigandi þeirra hefur gert eðlilegar ráðstafanir til að halda þeim leyndum.

  • Einkaleyfi veitir einkarétt á viðskiptalegri hagnýtingu uppfinningar í ákveðinn tíma, oftast 20 ár, gegn því að upplýsingar um hana séu gerðar opinberar. Viðskiptaleyndarmál eru hins vegar ekki skráð opinberlega og geta notið ótímabundinnar verndar, svo lengi sem leynd þeirra er viðhaldið. Kosturinn við viðskiptaleyndarmál er að þau renna ekki út, en ókosturinn er m.a. að verndin veitir ekki einkarétt og það er engin skráning á bak við þau til að sanna tilvist þeirra.

  • Já, viðskiptaleyndarmál eru almennt vernduð í flestum löndum samkvæmt reglum sem byggja á alþjóðlegum viðmiðum, svo sem TRIPS-samningnum (Agreement on Trade-Related Aspects of Intellectual Property Rights). Reglur og framkvæmd geta þó verið mismunandi eftir löndum, þannig að mælt er með að leita sérfræðiráðgjafar þegar viðskiptaleyndarmál tengjast mörgum löndum.

  • Eigandi viðskiptaleyndarmáls getur krafist bóta fyrir tjón sem hann verður fyrir vegna ólögmætrar afhjúpunar viðskiptaleyndarmáls. Mikilvægt er að hafa í huga að vernd viðskiptaleyndarmála byggist á því að eigandi hafi gert eðlilegar ráðstafanir til að halda þeim leyndum.

  • Lög um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020 kveða á um skilyrði fyrir vernd viðskiptaleyndarmála, réttindi eigenda og viðurlög við brotum.

  • Fyrirtæki ættu að setja trúnaðarákvæði í ráðningarsamninga, fræða starfsmenn um mikilvægi leyndar og takmarka aðgengi að viðkvæmum upplýsingum. Einnig er mælt með að gera trúnaðarsamninga við samstarfsaðila og aðra sem kunna að hafa aðgang að viðskiptaleyndarmálum.

  • Auk þess að setja trúnaðarákvæði í samninga og takmarka aðgengi að upplýsingum er mikilvægt að fræða starfsmenn og samstarfsaðila um mikilvægi leyndar, fylgjast reglulega með aðgengi að viðkvæmum upplýsingum og uppfæra öryggisráðstafanir eftir þörfum.

  • Ef viðskiptaleyndarmálum er stolið, misnotuð eða afhjúpuð án leyfis hefur eigandi þeirra nokkur lagaleg úrræði. Hann getur lagt fram kæru fyrir brot á lögum um viðskiptaleyndarmál, krafist skaðabóta eða óskað eftir lögbanni til að stöðva frekari misnotkun. Mikilvægt er að eiga sannanir fyrir leynd og aðgerðum til að vernda upplýsingarnar.

  • Nei, viðskiptaleyndarmál veita ekki slíkan einkarétt. Ef uppfinningu er viðhaldið sem viðskiptaleyndarmáli og einhver finnur upp sömu lausn með lögmætum hætti, án þess að brjóta trúnað, hefur hann rétt til að nota uppfinninguna án hindrana. Þetta er einn helsti ókostur viðskiptaleyndarmála samanborið við einkaleyfi.

  • Kostir:

    • Viðskiptaleyndarmál njóta ótímabundinnar verndar, svo lengi sem leynd þeirra er viðhaldið.
    • Ekki þarf að birta neinar upplýsingar um viðskiptaleyndarmál
    • Engin kostnaður fylgir umsóknarferli eða viðhaldi viðskiptaleyndarmáls, þar sem þau eru óskráð réttindi.

    Ókostir:

    • Ef leyndin fer forgörðum, t.d. vegna leka eða stuldar, tapast verndin.
    • Viðskiptaleyndarmál veita ekki lögbundinn einkarétt á uppfinningu eins og einkaleyfi gerir.
    • Samkeppnisaðilar geta þróað svipaða lausn á eigin spýtur og nýtt hana án þess að brjóta á rétti eiganda viðskiptaleyndarmáls.