Algengar spurningar
Hér má finna svör við algengustu spurningum viðskiptavina Hugverkastofunnar.
Umsóknargjaldið fer eftir gildandi gjaldskrá Hugverkastofunnar, sem nær eingöngu yfir landsbundnar umsóknir. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hvað einkaleyfi kostar í heild sinni en það veltur t.d. á fjölda krafa. 10 kröfur eru innfaldar en greiða þarf aukalega fyrir hverja kröfu umfram það.
Algengt er að íslensk umsókn sé notuð sem grunnur (forgangsréttur) fyrir umsóknir í öðrum löndum en einkaleyfi þarf að vernda í hverju landi fyrir sig. Þýðingakostnaður getur bæst við umsóknargjöld auk þess sem greiða þarf árgjöld af umsókninni í hverju landi fyrir sig.
Með einkaleyfi er hægt að vernda tæknilega útfærslu á hugmynd. Ekki er hægt að vernda hugmyndina sjálfa heldur aðeins útfærslu hennar, svo sem búnað, afurð, aðferð eða notkun. Uppfinningin verður að vera ný á heimsvísu á umsóknardegi og nægilega frábrugðin því sem þegar er þekkt. Uppfinningin þarf jafnframt að vera hæf til framleiðslu og hagnýtingar og lýsing hennar þarf að vera skýr og greinileg þannig að fagmaður geti útfært hana á grundvelli lýsingarinnar. Ekki má opinbera uppfinninguna fyrir umsóknardag, hvorki af uppfinningarmanni, umsækjanda sjálfum né öðrum.
Hugverkastofan mælir með að leita aðstoðar sérfræðings á sviði hugverkaréttar við gerð einkaleyfaumsókna.
Hægt er að leggja inn umsókn um einkaleyfi hjá Hugverkastofunni. Til þess að sækja um einkaleyfi þarf umsækjandi að hafa lögheimili á Íslandi, annars þarf að tilnefna umboðsmann til að koma fram fyrir hönd umsækjanda varðandi umsóknina.
Greiða þarf árgjöld einu sinni á ári til að viðhalda umsókninni og síðar einkaleyfinu. Einkaleyfi gildir í 20 ár frá umsóknardegi.
Lýsing: Lýsa þarf hugmyndinni ítarlega, allt frá því að hugmyndin verður til og þar til hún er fullmótuð. Lýsa því hvernig uppfinningin virkar, hvernig er hún frábrugðin því sem þegar er til, hverjum hún nýtist o.s.frv. Lýsingin þarf að vera það nákvæm að sá sem rannsakar nýnæmi uppfinningarinnar átti sig á uppfinningunni með lestri lýsingarinnar. Því er mikilvægt að segja frekar meira en minna.
Kröfur: Hér er talið upp hvað á að vernda í uppfinningunni. Mikilvægt er að útskýra á nákvæman hátt hvað á að vernda í hverri kröfu fyrir sig. Ef kæmi til dómsmála varðandi einkaleyfið eru það kröfurnar sem segja til um hvað er verndað í uppfinningunni. Því er mikilvægt að vanda orðalag vel.
Ágrip: Stutt samantekt sem inniheldur að hámarki 150 orð um innihald umsóknarinnar.
Teikningar: Gott er að láta teikningar fylgja með umsókn ef það á við, en það er ekki nauðsynlegt.
Ávallt skal vanda til verka þegar einkaleyfaumsókn er skrifuð. Hafa þarf í huga að allar umsóknir þarf að útfæra samkvæmt ákveðnum reglum (form og uppsetning) s.s. reglum um letur, blaðsíðutal, númer á línum og uppsetningu að öðru leyti. Því betur sem umsóknin er unnin því meiri möguleikar eru á jákvæðri rannsóknarniðurstöðu. Mælt er með að leita til sérfræðinga á sviði hugverkaréttar á þessu sviði sem geta aðstoðað við skrifin.
Sýnishorn af einkaleyfum má t.d. finna í gagnagrunninum Espacenet. Gagnlegt getur verið að kynna sér umsóknir eða útgefin einkaleyfi á sviði uppfinningarinnar.
Erfitt er að segja til um hversu langan tíma umsóknarferlið tekur. Það veltur á rannsóknarniðurstöðum o.fl. Gróflega má reikna með því að umsóknarferlið taki hið minnsta eitt og hálft ár og allt upp í nokkur ár. Algengt er að það taki þrjú ár að fá einkaleyfi.
Umsókn sem lögð er inn hjá Hugverkastofunni gildir eingöngu á Íslandi. Umsækjandi hefur 12 mánuði frá umsóknardegi til þess að ákveða hvort sótt er um erlendis, t.d. í alþjóðlegu ferli.
Allar umsóknir eru birtar þegar 18 mánuðir eru liðnir frá umsóknardegi. Þangað til er öllum gögnum umsóknarinnar haldið leyndum. Þegar umsóknin hefur verið birt verður hún aðgengileg öllum og telst vera þekkt tækni gagnvart öðrum umsóknum.