Algengar spurningar

Hér má finna svör við algengustu spurningum viðskiptavina Hugverkastofunnar.

  • Viðskiptaleyndarmál eru upplýsingar sem hafa viðskiptalegt gildi vegna þess að þeim er haldið leyndum. Þetta geta verið framleiðsluaðferðir, uppskriftir, viðskiptaáætlanir, forritunarkóði eða aðrar upplýsingar sem fyrirtæki vilja halda leyndum til að viðhalda samkeppnisforskoti. Viðskiptaleyndarmál njóta lagalegrar verndar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

  • Til að vernda viðskiptaleyndarmál er mikilvægt að grípa til ráðstafana til að halda þeim leyndum. Það getur m.a. falist í að setja trúnaðarákvæði í ráðningarsamninga starfsmanna, gera trúnaðarsamninga við samstarfsaðila og takmarka aðgengi að viðkvæmum upplýsingum þannig að aðeins þau sem þurfa á þeim að halda hafi aðgang.

  • Nei, það þarf ekki að skrá viðskiptaleyndarmál sérstaklega til að þau njóti lagalegrar verndar. Vernd þeirra byggist á því að eigandi grípi til eðlilegra ráðstafana til að halda þeim leyndum, svo sem með trúnaðarsamningum, aðgangsstýringum og fræðslu til starfsmanna.

  • Upplýsingar teljast viðskiptaleyndarmál ef þær eru ekki almennt þekktar eða aðgengilegar, hafa viðskiptalegt gildi vegna þess að þeim er haldið leyndum og eigandi þeirra hefur gert eðlilegar ráðstafanir til að halda þeim leyndum.

  • Einkaleyfi veitir einkarétt á viðskiptalegri hagnýtingu uppfinningar í ákveðinn tíma, oftast 20 ár, gegn því að upplýsingar um hana séu gerðar opinberar. Viðskiptaleyndarmál eru hins vegar ekki skráð opinberlega og geta notið ótímabundinnar verndar, svo lengi sem leynd þeirra er viðhaldið. Kosturinn við viðskiptaleyndarmál er að þau renna ekki út, en ókosturinn er m.a. að verndin veitir ekki einkarétt og það er engin skráning á bak við þau til að sanna tilvist þeirra.

  • Já, viðskiptaleyndarmál eru almennt vernduð í flestum löndum samkvæmt reglum sem byggja á alþjóðlegum viðmiðum, svo sem TRIPS-samningnum (Agreement on Trade-Related Aspects of Intellectual Property Rights). Reglur og framkvæmd geta þó verið mismunandi eftir löndum, þannig að mælt er með að leita sérfræðiráðgjafar þegar viðskiptaleyndarmál tengjast mörgum löndum.

  • Eigandi viðskiptaleyndarmáls getur krafist bóta fyrir tjón sem hann verður fyrir vegna ólögmætrar afhjúpunar viðskiptaleyndarmáls. Mikilvægt er að hafa í huga að vernd viðskiptaleyndarmála byggist á því að eigandi hafi gert eðlilegar ráðstafanir til að halda þeim leyndum.

  • Lög um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020 kveða á um skilyrði fyrir vernd viðskiptaleyndarmála, réttindi eigenda og viðurlög við brotum.

  • Fyrirtæki ættu að setja trúnaðarákvæði í ráðningarsamninga, fræða starfsmenn um mikilvægi leyndar og takmarka aðgengi að viðkvæmum upplýsingum. Einnig er mælt með að gera trúnaðarsamninga við samstarfsaðila og aðra sem kunna að hafa aðgang að viðskiptaleyndarmálum.

  • Auk þess að setja trúnaðarákvæði í samninga og takmarka aðgengi að upplýsingum er mikilvægt að fræða starfsmenn og samstarfsaðila um mikilvægi leyndar, fylgjast reglulega með aðgengi að viðkvæmum upplýsingum og uppfæra öryggisráðstafanir eftir þörfum.

  • Ef viðskiptaleyndarmálum er stolið, misnotuð eða afhjúpuð án leyfis hefur eigandi þeirra nokkur lagaleg úrræði. Hann getur lagt fram kæru fyrir brot á lögum um viðskiptaleyndarmál, krafist skaðabóta eða óskað eftir lögbanni til að stöðva frekari misnotkun. Mikilvægt er að eiga sannanir fyrir leynd og aðgerðum til að vernda upplýsingarnar.

  • Nei, viðskiptaleyndarmál veita ekki slíkan einkarétt. Ef uppfinningu er viðhaldið sem viðskiptaleyndarmáli og einhver finnur upp sömu lausn með lögmætum hætti, án þess að brjóta trúnað, hefur hann rétt til að nota uppfinninguna án hindrana. Þetta er einn helsti ókostur viðskiptaleyndarmála samanborið við einkaleyfi.

  • Kostir:

    • Viðskiptaleyndarmál njóta ótímabundinnar verndar, svo lengi sem leynd þeirra er viðhaldið.
    • Ekki þarf að birta neinar upplýsingar um viðskiptaleyndarmál
    • Engin kostnaður fylgir umsóknarferli eða viðhaldi viðskiptaleyndarmáls, þar sem þau eru óskráð réttindi.

    Ókostir:

    • Ef leyndin fer forgörðum, t.d. vegna leka eða stuldar, tapast verndin.
    • Viðskiptaleyndarmál veita ekki lögbundinn einkarétt á uppfinningu eins og einkaleyfi gerir.
    • Samkeppnisaðilar geta þróað svipaða lausn á eigin spýtur og nýtt hana án þess að brjóta á rétti eiganda viðskiptaleyndarmáls.