
Fræðsla
Sækja um erlendis
Hugverkaréttindi sem eru skráð hjá Hugverkastofunni njóta aðeins verndar á Íslandi. Ef til stendur að selja vörur eða þjónustu erlendis er mikilvægt að huga tímanlega að vernd hugverkaréttinda í þeim löndum þar sem stefnt er að sölu eða markaðssetningu. Alþjóðlegt umsóknarkerfi einfaldar umsækjendum að sækja um í mörgum löndum samtímis. Ákvörðun um vernd liggur hins vegar ávallt hjá hugverkastofu í hverju landi eða svæði fyrir sig. Til að skrá réttindi erlendis eru ýmsar leiðir færar. Þannig er mögulegt að sækja um í einstaka löndum, leggja inn svæðisbundnar umsóknir eða fara í alþjóðlegt umsóknarferli.
Alþjóðlegar umsóknirUmtalsverður fjöldi íslenskra aðila nýtir sér alþjóðleg umsóknarkerfi Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO), en með slíkum umsóknum er hægt að tryggja vernd á öllum stærstu mörkuðum heimsins. Hugverkastofan hefur milligöngu um alþjóðlegar umsóknir um vörumerki, einkaleyfi og hönnun.
Alþjóðleg vörumerkjaumsókn
Hjá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) er hægt að leggja inn alþjóðlega umsókn og hefja umsóknarferli í yfir 120 löndum með einni umsókn. Áður en alþjóðleg umsókn er lögð inn þarf að sækja um eða eiga skráð vörumerki hjá Hugverkstofunni.
Alþjóðleg einkaleyfisumsókn
Hjá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) er hægt að leggja inn alþjóðlega umsókn og hefja umsóknarferli í yfir 150 löndum með einni umsókn. Gott er að sækja fyrst um einkaleyfi á Íslandi og fá rannsókn á uppfinningunni áður en farið er af stað með alþjóðlega umsókn.
Alþjóðleg hönnunarumsókn
Hjá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) er hægt að leggja inn alþjóðlega umsókn og hefja umsóknarferli í yfir 90 löndum með einni umsókn.
Evrópskar umsóknirHjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er hægt að leggja inn umsóknir um skráningu vörumerkja og hönnunar sem geta gilt í öllum aðildarríkjum sambandsins. Þá tekur Evrópska einkaleyfastofan (EPO) við umsóknum um evrópsk einkaleyfi sem geta tekið gildi í yfir 40 löndum. Hjá EPO er einnig hægt að sækja um svokallað eitt evrópskt einkaleyfi (unitary patent) sem gildir í flestum ríkjum Evrópusambandsins.
Evrópsk vörumerkjaumsókn
Hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er hægt að leggja inn eina umsókn sem nær til allra landa sambandsins.
Evrópsk einkaleyfisumsókn
Hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) er hægt að leggja inn eina umsókn sem nær til um það bil 40 landa í Evrópu og víðar.
Evrópsk hönnunarumsókn
Hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er hægt að leggja inn eina umsókn sem nær til allra landa sambandsins.