Upplýsingar fyrir eigendur nýrra hönnunarskráninga

Til hamingju með skráningu hönnunarinnar þinnar hjá Hugverkastofunni. Hér eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að þú sem eigandi skráðrar hönnunar hafir í huga.

Gildistími skráningar
Skráning hönnunar gildir að lágmarki í fimm ár frá umsóknardegi. Að þeim tíma liðnum er hægt að endurnýja skráninguna til fimm ára í senn, að hámarki í 25 ár.

Vernd
Skráningin veitir einkarétt á notkun hönnunarinnar á Íslandi. Mikilvægt er að hafa í huga að skráningin er landsbundin og skapar ekki réttindi utan Íslands, en getur þó komið í veg fyrir að eins hönnun fáist skráð erlendis, þar sem hönnun þarf að vera ný á heimsvísu á umsóknardegi. Ef fyrirhuguð er markaðssetning erlendis, ætti að skoða möguleika á alþjóðlegri skráningu, t.d. í gegnum Haagsamninginn eða hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins.

Notkun annarra á eins eða mjög líkri hönnun
Við fylgjumst ekki með notkun annarra á eins eða mjög líkri hönnun en hvetjum þig til að vera með opin augun gagnvart slíku.

Endurnýjun skráningar
Hægt er að endurnýja skráningu á hönnun þremur mánuðum áður en hún rennur út og allt að sex mánuðum eftir. Fyrir endurnýjun á skráningu er greitt endurnýjunargjald sem er nokkru hærra en umsóknargjaldið. Það er mjög mikilvægt að að fylgjast vel með dagsetningum og tryggja að skráningin falli ekki úr gildi. Það er t.d. hægt að gera á Mínum síðum. Hugverkastofan sendir eiganda hönnunarskráningar áminningu um að komið sé að endurnýjun tímanlega áður en hún fellur úr gildi. Áminningin er send á netfang sem skráð er með umsókn og í stafrænt pósthólf á island.is. Ef breyting verður á eiganda hönnunar eða ef netfang eiganda breytist er þess vegna mikilvægt að tilkynna það til okkar.

Ógilding skráningar
Hver sem er getur krafist þess að Hugverkastofan ógildi skráningu hönnunar. Unnt er að fara fram á ógildingu ef skráningin er talið hafa verið andstæð ákvæðum hönnunarlaga.

Breytingar
Tilkynna þarf Hugverkastofunni um breytingar á eignarhaldi skráningarinnar.

Veðsetning
Ef skráning hefur verið veðsett geta eigandi eða veðhafi tilkynnt Hugverkastofunni um veðsetninguna. Eigandi eða veðhafi bera ábyrgð á að tilkynna Hugverkastofunni um framsal veðs og eins ef veðsetning fellur niður.

Nytjaleyfi
Eigandi skráðrar hönnunar getur veitt öðrum leyfi til að nota hana í atvinnuskyni með nytjaleyfi og óskað eftir að það sé skráð í hönnunarskrá. Eigandi skráningar eða nytjaleyfishafi bera ábyrgð á að tilkynna Hugverkastofunni um framsal nytjaleyfis og eins ef nytjaleyfi fellur úr gildi.

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða þarft aðstoð við endurnýjun, alþjóðlega skráningu eða annað sem varðar hönnunina þína, þá er þér velkomið að hafa samband með tölvupósti á hugverk@hugverk.is með því að hringja í síma 580 9400 eða með því að skilja eftir skilaboð á spjallinu.