Fréttir

Varist villandi greiðslukröfur

Eiríkur Sigurðsson20. nóvember 2025Hugverkastofan
Aðvörun Web

Það virðist færast í vöxt að óprúttnir aðilar sendi villandi greiðslukröfur á umsækjendur um skráningu vörumerkja og annarra hugverkaréttinda. Jafnvel eru dæmi um að slíkt bréf hafi borist á heimili umsækjanda aðeins tveimur vikum eftir að sótt er um skráningu vörumerkis.

Hér má nálgast frekari upplýsingar varðandi þessar villandi greiðslukröfur og lista yfir aðila sem Hugverkastofan hefur vitneskju um að hafi krafist greiðslu af eigendum hugverkaréttinda og þannig reynt að villa um fyrir þeim.

Það er auðvelt að rugla þessum villandi kröfum við raunverulegar greiðslukröfur vegna skráninga hjá Hugverkastofunni eða alþjóðastofnunum og einstaka aðilar hafa því miður greitt kröfurnar.

Hugverkastofan vill leggja áherslu á að þessar villandi kröfur tengjast stofnuninni ekki á nokkurn hátt og engin þörf er á að greiða þær, hvorki til að tryggja réttindi á Íslandi né í öðrum löndum. Aðeins skráningaryfirvöld og umboðsmenn eigenda hugverkaréttinda geta krafist greiðslu vegna skráninga.

Umsóknar- og viðhaldsgjöld vegna einkaleyfa, vörumerkja og hönnunarskráninga á Íslandi er aðeins hægt að greiða til Hugverkastofunnar. Gjöld vegna alþjóðlegra umsókna eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) eða til Hugverkastofunnar og gjöld vegna umsókna um einkaleyfi hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) á aðeins að greiða til EPO. Hafi einkaleyfi verið staðfest á Íslandi greiðast viðhaldsgjöld til Hugverkastofunnar. Fyrir umsóknar- og viðhaldsgjöld vegna vörumerkja og hönnunarskráninga í Evrópusambandinu skal aðeins greiða til Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO).