Fréttir

Hugverkatíðindi gefin út einu sinni í viku

Eiríkur Sigurðsson17. desember 2025Hugverkatíðindi
Vefur (1)

Frá áramótum verða Hugverkatíðindi gefin út vikulega í stað mánaðarlega eins og verið hefur.

Með aukinni tíðni á útgáfunni er komið til móts við óskir viðskiptavina sem hafa til þessa þurft að bíða í allt að sex vikur frá því að ákvarðanir sem varða skráningu hugverkaréttinda eru teknar, þar til þær eru birtar. Með vikulegri útgáfu verður hægt að birta ákvarðanir allt niður í þremur dögum eftir að þær eru teknar.

Vikuleg útgáfa er í takt við það sem gerist í helstu samanburðarlöndum og hjá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) og Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO).

Í Hugverkatíðindum er að finna auglýsingar og tilkynningar sem varða umsóknir og skráningar hugverka á Íslandi. Helstu breytingar sem verða á útgáfunni um áramótin eru:

  • Tíðindin verða gefin út hvern miðvikudag, fyrst 7. janúar 2026.
  • Annan miðvikudag í hverjum mánuði munu tíðindin innihalda allar tegundir tilkynninga, þ.e. í þeim verða allir sömu kaflar og verið hafa í Hugverkatíðindum til þessa, eftir því sem við á.
  • Aðra miðvikudaga munu tíðindin aðeins innihalda tilkynningar um birtingu vörumerkja, skráningu hönnunar, aðgengilegar einkaleyfisumsóknir og þýðingu á kröfum evrópskra einkaleyfisumsókna sem óskað hefur verið eftir flýtibirtingu á, auk tilkynninga um andmæli og áfrýjanir.

Síðar á árinu 2026 er gert ráð fyrir að enn frekari breytingar verði gerðar á útgáfu Hugverkatíðinda, þegar útgáfa þeirra verður alfarið stafræn.