Vörumerki og nýsköpun og tónlist og hugverkaréttindi á Nýsköpunarvikunni

12. maí 2025Viðburðir
Hugverkastofan stendur fyrir tveimur áhugaverðum viðburðum á Nýsköpunarvikunni (Iceland Innovation Week) sem nú stendur yfir.
Þriðjudaginn 13. maí kl. 10:30 – 12:00 verður fjallað um mikilvægi vörumerkja í nýsköpun á viðburðinum Branding Innovation í Grósku. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Samtök iðnaðarins og ÍMARK. Þar munu íslenskir frumkvöðlar deila reynslu sinni af því hvernig vörumerki og vörumerkjaskráning styðja við vöxt, hvers vegna það skiptir máli að tryggja réttindi snemma og hvað þarf til að byggja upp vörumerki sem vekur athygli – bæði heima og erlendis. Meðal fyrirlesara er Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri vörumerkja og hönnunar hjá Bláa lóninu, Eyrún Jónsdóttir; forstöðumaður leikjaútgáfu hjá CCP og Hólmfríður Kristín Árnadóttir, markaðsstjóri Vaxa. Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
Fimmtudaginn 15. maí kl. 16:00-18:00 verður kastljósinu svo beint að hugverkaréttindum í tónlist á viðburðinum Feel the Beat of IP á Bird Rvk. Þar verður blandað saman lifandi tónlistarflutningi og áhugaverðum og snörpum erindum um vörumerki, einkaleyfi og höfundarrétt sem tengjast tónlist. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Tónlistarmiðstöð, STEF og Bird Rvk og er haldinn í tilefni Alþjóðahugverkadagsins (#WorldIPday). Á viðburðinum mun María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, m.a. tala um um verðmæti íslenskrar tónlistar, Ólafur Bjarki Bogason, forstjóri Genki Instruments og Sóley Stefánsdóttir, tónskáld og tónlistarkona, kynna nýja Katla hljóðgervilinn frá Genki og Soffía Kristín, umboðsmaður og meðeigandi að Iceland Sync Creative, tala um uppbyggingu á vörumerkinu BRÍET.
Kaldur verður á krananum á Happy Hour.
