Fréttir
Upplýsingar um vinnulag við mat á skráningarhæfi vörumerkja birtar á vefnum

Hugverkastofan hefur birt á vefnum fyrsta hluta vörumerkjahandbókar stofnunarinnar, sem snýr að almennum þáttum, flokkun vöru og þjónustu og skráningarskilyrðum.
Í vörumerkjahandbókinni er að finna ítarlegar upplýsingar um vinnulag Hugverkastofunnar við mat á skráningarhæfi vörumerkja. Hún veitir yfirlit yfir helstu lagareglur og sjónarmið við skráningu og vernd vörumerkja og inniheldur fjölmörg dæmi um úrskurði og ákvarðanir Hugverkastofunnar, úrskurði áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar og dómstóla. Markmiðið við gerð handbókarinnar var að veita starfsfólki stofnunarinnar skýrar og aðgengilegar leiðbeiningar og stuðla þannig að samræmdu vinnulagi og auknum gæðum við mat á skráningarhæfi vörumerkja. Starfsfólk stofnunarinnar hefur haft vörumerkjahandbók til hliðsjónar við störf sín allt frá árinu 2017 en undanfarið hefur hún verið uppfærð og bætt við nýjum köflum.
Markmiðið með útgáfu handbókarinnar á vef stofnunarinnar er að auka gagnsæi og skýra forsendur ákvarðana Hugverkastofunnar varðandi skráningarhæfi vörumerkja. Útgáfunni er einnig ætlað að veita leiðbeiningar og stuðla að aukinni þekkingu á skráningu og vernd vörumerkja. Vörumerkjahandbókin er aðeins leiðbeinandi skjal en ekki bindandi varðandi framkvæmd. Skjalið er lifandi að því leyti að það er uppfært reglulega án þess að greint sé sérstaklega frá því. Stefnt er að því að efni handbókarinnar sé nákvæmt og uppfært en ekki er hægt að útiloka að í því leynist villur, né ábyrgist Hugverkastofan að efni hennar sé ávallt uppfært um leið og breyting verður á framkvæmd.
Með birtingu vörumerkjahandbókarinnar fetar Hugverkastofan í fótspor dönsku hugverkastofunnar og hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO). Áfram verður unnið að útgáfu handbókarinnar á vefnum og á næstunni munu bætast við fleiri kaflar um túlkun og framkvæmd vörumerkjalaga.
Við fögnum öllum ábendingum um efni handbókarinnar og hvetjum notendur til að senda ábendingar á hugverk@hugverk.is.
