Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna

Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna eru verðlaun sem hugverkastofur Norðurlandanna standa að í sameiningu til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaverndar. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2025.

Markmið verðlaunanna er að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafa framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.

Hvert Norðurlandanna tilnefnir eitt fyrirtæki til verðlaunanna. Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Noregs, Finnlands Danmerkur og Svíþjóðar, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, mun velja eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin. Við mat á tilnefndum fyrirtækjum verður horft til fimm þátta:

  • Nýsköpun - Nýsköpunin verður að fela í sér nýja og frumlega nálgun, vísindi eða tækni, einstakar aðferðir eða skapandi lausnir við úrlausn vandamála.
  • Sjálfbærni - Nýsköpunin þarf að stuðla að aukinni sjálfbærni og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SDG).
  • Viðskiptalegur lífvænleiki og vaxtarmöguleikar - Nýsköpunin ætti að mynda grundvöll fyrir raunhæfa og skalanlega viðskiptahugmynd sem líklegt er að skili arði til framtíðar.
  • Mælanlegur árangur – Sýna þarf fram á að nýsköpunin hafi skilað mælanlegum árangri, hvort sem það er í formi sölutekna, markaðssóknar, viðskiptaáætlana, dæmisagna eða nýrrar og viðurkenndrar aðferðafræði.
  • Skráð hugverk – Nýsköpunin þarf að vera vernduð með skráðum hugverkaréttindum (einkaleyfi, vörumerki eða iðnhönnun) á viðeigandi mörkuðum.
Merki Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna

Hugverkastofan tilnefnir það fyrirtæki sem hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands hverju sinni, fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna, í samráði við samstarfsaðila um Nýsköpunarverðlaun Íslands: Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðinn Kríu.

Norska nýsköpunarfyrirtækið Cartesian hlaut Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna árið 2025 fyrir uppfinningu sína á varmaorkugeymslu fyrir stór húshitunar- og kælikerfi. Carbfix var tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd fyrir einkaleyfisvarða aðferð þeirra við að binda koltvísýring varanlega í bergi.

Árið 2026 hlaut finnska fyrirtækið Weeefiner verðlaunin fyrir einkaleyfisvarða tækni til að hreinsa málma og verðmæt steinefni úr iðnaðaraffalli. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine var tilnefnt fyrir Íslands hönd fyrir snjallsiglingakerfið IMAS® (Intelligent Marine Assistance System) sem nýtir gervigreind og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að birta skipsstjórnendum og flotastjórum leiðsögn í rauntíma um þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur.