Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Vinnur Hefring Marine Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna 21. maí?

DSF7148 3

11. maí 2026Alþjóðlegt samstarfNýsköpunViðburðir

Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine, handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2025, er tilnefnt fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna 2026. Að verðlaununum standa hugverkastofur Norðurlandanna. Þau verða afhent í annað sinn við hátíðlega athöfn í Ósló 21. maí næstkomandi. Beint streymi verður frá afhendingunni hér á hugverk.is.

Hefring Marine hefur þróað snjallsiglingakerfið IMAS® (Intelligent Marine Assistance System) sem nýtir gervigreind  og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að birta skipsstjórnendum og flotastjórum leiðsögn í rauntíma um þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur. Kerfið er notað af björgunaraðilum, sjóherjum, útgerðum, bátaframleiðendum og ferðaþjónustuaðilum um allan heim, þar á meðal í Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ítalíu og á Íslandi.

Hvert Norðurlandanna tilnefnir eitt nýsköpunarfyrirtæki til verðlaunanna. Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, velur eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin.

Önnur tilnefnd sem tilnefnd eru til verðlaunanna eru:

Lybe Scientific frá Noregi

Lybe Scientific hefur þróað nýstárlega aðferð til að einangra DNA og RNA úr lífsýnum á fljótlegan hátt. Tæknin byggir á segulmögnuðum örkúlum og er notuð í læknisfræðilegri greiningu, lyfjaþróun, fiskeldi og margskonar lífvísindum.

Sonus Fishery frá Danmörku

Sonus Fishery hefur þróað aðferð til að nýta hljóðbylgjur til að beina ákveðnum fiskitegundum inn í botntroll og þannig opnað nýjar leiðir til skilvirkra veiða með minni áhrifum á hafsbotninn og lífríki sjávar.

Weeefiner frá Finnlandi

Weeefiner sérhæfir sig í endurvinnslu málma úr iðnaðaraffalli. Scavenger®-tæknin sameinar skilvirkni í nýtingu auðlinda og umhverfisvernd. Hún hefur verið prófuð víða um heim við endurvinnslu á meira en 15 mismunandi málmum og hentar mörgum geirum, þar á meðal námuiðnaði, málmiðnaði, efnaiðnaði og orkugeiranum.

Grale frá Svíþjóð

Grale hefur þróað valkost við umbúðaplast úr endurnýjanlegu hráefni, svo sem útgangi frá landbúnaði og skógrækt. Tæknin er einkaleyfisvernduð og ekki þarf að breyta tækjabúnaði til að nýta hana, sem gerir lausnina skalanlega og hagkvæma.

Við mat á tilnefndum fyrirtækjum er horft til fimm þátta:

  • Nýsköpun - Nýsköpunin verður að fela í sér nýja og frumlega nálgun, vísindi eða tækni, einstakar aðferðir eða skapandi lausnir við úrlausn vandamála.
  • Sjálfbærni - Nýsköpunin þarf að stuðla að aukinni sjálfbærni og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SDG).
  • Viðskiptalegur lífvænleiki og  vaxtarmöguleikar - Nýsköpunin þarf að skapa grundvöll fyrir raunhæfa og skalanlega viðskiptahugmynd sem líklegt er að skili arði til framtíðar.
  • Mælanlegur árangur – Sýna þarf fram á að nýsköpunin hafi skilað mælanlegum árangri, hvort sem það er í formi sölutekna, markaðssóknar, viðskiptaáætlana eða nýrrar og viðurkenndrar aðferðafræði.
  • Skráð hugverk – Nýsköpunin þarf að vera vernduð með skráðum hugverkaréttindum (einkaleyfi, vörumerki eða hönnun) á viðeigandi mörkuðum.

Markmið verðlaunanna er að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafa framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.