Fyrirtæki sem eiga skráð hugverkaréttindi skapa meiri tekjur og greiða hærri laun

17. janúar 2025Alþjóðlegt samstarfTölfræði
Evrópsk fyrirtæki sem eiga að minnsta kosti eitt einkaleyfi, skráð vörumerki eða hönnun, skapa að meðaltali 24% hærri tekjur á hvern starfsmann en fyrirtæki sem ekki eiga skráð hugverkaréttindi og greiða starfsmönnum að meðaltali 22% hærri laun. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) og Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO).
Í skýrslunni er fjallað um niðurstöður viðamikillar rannsóknar stofnananna sem náði til 119.000 evrópskra fyrirtækja frá öllum 27 aðildarríkjum ESB yfir tíu ára tímabil (2013-2022). Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að skráð hugverkaréttindi tengjast betri rekstrarárangri fyrirtækja. Þessi tengsl eru sérstaklega sterk hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þó eiga minna en 10% lítilla og meðalstórra evrópskra fyrirtækja skráð hugverkaréttindi, samanborið við næstum 50% stórra fyrirtækja.
Ef horft er til einkaleyfa sérstaklega skapa fyrirtæki sem eiga a.m.k. eitt einkaleyfi að meðaltali 29% hærri tekjur á hvern starfsmann en önnur fyrirtæki og greiða 43% hærri laun.
Í ályktunum skýrslunnar kemur fram að niðurstöðurnar séu í samræmi við ályktanir Draghi-skýrslunnar um mikilvægi þess að efla samkeppnishæfni Evrópu með aukinni nýsköpun.
Sé horft til Íslands undirstrika niðurstöðurnar mikilvægi þess að íslensk fyrirtæki íhugi skráningu hugverkaréttinda til að bæta samkeppnishæfni og rekstrarárangur. Hugverkastofan sér um skráningu einkaleyfa, vörumerkja og hönnunar hér á landi og veitir ráðgjöf og aðstoð þar að lútandi.
Helstu niðustöður skýrslu EPO og EUIPO
| Fjöldi starfsmanna | Árstekjur á hvern starfsmann í evrum | Árslaun á hvern starfsmann í evrum | ||
| Fyrirtæki sem ekki eiga skráð hugverkaréttindi | 4,2 | 147.230 | 25.430 | |
| Fyrirtæki sem eiga skráð hugverkaréttindi |
Öll hugverkaréttindi |
9,1 | 182.270 | 31.040 |
|
munur m.v. önnur fyrirtæki |
118% | 24% | 22% | |
| Eigendur einkaleyfa | 13 | 189490 | 36420 | |
|
munur m.v. önnur fyrirtæki |
212% | 29% | 43% | |
| Vörumerkjaeigendur | 9 | 181.560 | 30740 | |
| munur m.v. önnur fyrirtæki | 117% | 23% | 21% | |
| Eigendur að skráðri hönnun | 12 | 190.440 | 31.730 | |
| munur m.v. önnur fyrirtæki | 180% | 29% | 25% |
