Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Kynning á nýrri skýrslu um íslenskar einkaleyfisumsóknir á sviði lífvísinda

Ljosmynd

30. janúar 2023Viðburðir

Ný skýrsla um einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja sem starfa á sviði lífvísinda verður kynnt á málefnafundi Heilsutækniklasans miðvikudaginn 1. febrúar kl. 8:30 - 10, í Ármúla 13 á 1. hæð.

Öll velkomin.

Skráning fer fram hér.

Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um fjölda íslenskra einkaleyfisumsókna á sviði lífvísinda til Evrópsku einkaleyfastofunnar EPO og Bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjastofunnar USPTO 2010-2021. Skoðaðar eru umsóknir frá fyrirtækjum í lyfjageiranum, líftækni, heilbrigðistækni og matvælafræði og fjöldi umsókna borinn saman við fjölda umsókna frá dönskum, norskum, sænskum, þýskum, svissneskum, bandarískum og kínverskum fyrirtækjum í sömu geirum. Skýrslan er gerð að fyrirmynd danskrar skýrslu sem gefin var út af dönsku hugverkastofunni 2020.

Auk skýrslunnar verða umræðuefni fundarins einkaleyfi, regluverk og hindranir að markaði. 

Húsið opnar kl. 08:15 með morgunmat og kaffi og fundurinn hefst stundvíslega kl. 08:45.

Dagskrá:

08:15 Hús opnar
08:45 Velkomin
08:50 Borghildur Erlingsdóttir og Eiríkur Sigurðsson - Hugverkastofunni:
Kynning á skýrslu um erlendar einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja á sviði lífvísinda.
09:05 Einar Karl Friðriksson - Árnason Faktor: Einkaleyfi í heilsutækni - strategísk ráð.
09:20 Guðmundur Reynaldsson - Controlant: Reynslusaga
09:30 Pallborð: Eiríkur Sigurðsson, Hugverkastofunni; Einar Karl Friðriksson, Árnason Faktor; Páll Ragnar Jóhannesson, Oculis; Kristján Gunnarsson, ArcanaBio; Baldur Þorgilsson, Kiso.
10:00 Lokaorð