Útgáfa » Fréttir

Ísland stendur vel hvað varðar einkaleyfisumsóknir á sviði lífvísinda

Ísland stendur vel hvað varðar einkaleyfisumsóknir á sviði lífvísinda

18. október 2023

Birtum einkaleyfisumsóknum íslenskra fyrirtækja á sviði lífvísinda hjá Bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjastofunni (US Patent and Trademark Office, USPTO) fjölgaði lítillega árið 2022 frá árinu áður en fækkaði hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO). Þó einkaleyfaumsóknum íslenskra lífvísindafyrirtækja hafi farið heldur fækkandi undanfarin ár er Ísland enn meðal þeirra landa sem á flestar umsóknir um einkaleyfi á sviði lífvísinda miðað við mannfjölda. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum sem teknar voru saman fyrir Hugverkastofuna í tilefni Nýsköpunarþings 2023 sem er helgað líf- og heilbrigðisvísindum og verður haldið 26. október í Grósku.

Í skýrslu Hugverkastofunnar Íslenskar einkaleyfisumsóknir á sviði lífvísinda 2010-2021 frá í fyrra eru teknar saman upplýsingar um birtar umsóknir um einkaleyfi á uppfinningum á sviði lífvísinda frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Þýsklandi, Sviss, Kína og Bandaríkjunum til USPTO og EPO. Í nýuppfærðum tölum fyrir árið 2022 kemur fram að aðeins voru birtar fleiri einkaleyfisumsóknir á þessu sviði frá svissneskum og dönskum fyrirtækjum, en íslenskum,  á síðasta ári, miðað við höfðatölu.

Langflestar íslenskar einkaleyfisumsóknir innan lífvísinda eru fyrir uppfinningar í heilbrigðistækni og Össur lagði inn 365 af þeim 577 einkaleyfisumsóknum sem birtar voru frá íslenskum fyrirtækjum hjá USPTO og EPO fyrir uppfinningar á sviði lífvísinda ári2010-2022, eða 63%*. Umsóknir um einkaleyfi á sviði líftækni, matvælafræði og lyfja eru hins vegar almennt færri en í samanburðarlöndunum. Önnur fyrirtæki og stofnanir á topp-tíu lista íslenskra umsækjenda innan lífvísinda eru: Actavis, deCODE, Nox Medical, Skaginn 3X, Háskóli Íslands, ORF Líftækni, Kerecis, Genís, Marel, Matís og Oculis.

Árin 2010-2022 voru 327 umsóknir um einkaleyfi á sviði lífvísinda birtar hjá  Hugverkastofunni. Langflestar þeirra voru frá alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum og þar er AstraZeneca umsvifamest með 33 umsóknir. Íslensk fyrirtæki og stofnanir áttu sextán umsóknir og af þeim átti Háskóli Íslands þrjár. 

 

*Við talningu einkaleyfisumsókna einstakra fyrirtækja í skýrslunni eru einkaleyfisumsóknir um sömu uppfinningu taldar sem ein umsókn. Taldar eru svokallaðar einfaldar DOCDB-fjölskyldur einkaleyfisumsókna, þar sem hver fjölskylda nær til einnar uppfinningar.